Vaðlaheiðargöng hafa skipt sköpum með sjúkraflutninga

Eysteinn Heiðar Kristjánsson, yfirmaður sjúkraflutninga hjá Heilbrigðisstofnun Norðurlands í Þingeyj…
Eysteinn Heiðar Kristjánsson, yfirmaður sjúkraflutninga hjá Heilbrigðisstofnun Norðurlands í Þingeyjarsýslum, segir tilkomu Vaðlaheiðarganga hafa gjörbreytt stöðu mála varðandi sjúkraflutninga milli Þingeyjarsýslna og Eyjafjarðar.

Þann 26. september sl. birtist í Vikudegi athyglisvert viðtal við Eystein Heiðar Kristjánsson, yfirmann sjúkraflutninga hjá Heilbrigðisstofnun Norðurlands í Þingeyjarsýslum, þar sem hann segir að tilkoma Vaðlaheiðarganga í ársbyrjun hafi stóraukið öryggi fólks austan Vaðlaheiðar. Göngin hafi gert það að verkum að unnt hafi verið að koma á ákveðinni verkaskiptingu Akureyrar og Húsavíkur gagnvart sjúkraflutningum í Suður-Þingeyjarsýslu og jafnframt hafi þjónustan verið stóraukin. Hann segir að af tæplega 500 sjúkraútköllum á Húsavík fari sjúkrabílar með fólk í rösklega þrjúhundruð tilvika á Sjúkrahúsið á Akureyri. Þarna skipti göngin sköpum, ekki síst yfir vetrarmánuðina.

Í fréttinni segir Eysteinn Heiðar: „Augljóslega hafa göngin stytt tímann sem tekur að koma veiku eða slösuðu fólki á sérhæft sjúkrahús á Akureyri. Hitt sem vill oft gleymast í þessu sambandi er að göngin stytta einnig tímann sem sjúkrabílarnir eru í burtu úr héraði, það tekur einfaldlega skemmri tíma að koma fólki til Akureyrar og að sama skapi tekur það skemmri tíma fyrir bílana að koma aftur austur. Þetta skiptir verulega miklu máli fyrir okkar svæði.“ segir Eysteinn.

Hann nefnir líka í fréttinni að með göngunum hafi orðið til ákveðin verkaskipting milli sjúkraflutninga frá Húsavík og Akureyri. Nú sjái Slökkviliðið á Akureyri um sjúkraflutninga af vesturhluta svæðisins, næst austari gangamunnanum, en sjúkraflutningamenn á Húsavík hafi umsjón með austari hluta svæðisins. Í þessu sambandi nefndi Eysteinn að ef verði slys eða bráð veikindi fólks við t.d. Goðafoss komi sjúkrabílar á svæðið bæði frá Húsavík og Akureyri. Með öðrum orðum, tilkoma Vaðlaheiðarganga hafi gert það að verkum að unnt hafi verið að stórauka öryggisþjónustu við fólk austan Vaðlaheiðar varðandi heilbrigðisþjónustu. Þá rifjar hann upp að áður en göngin komu til sögunnar hafi vaktmaður sjúkraflutninga á Húsavík verið vakandi og sofandi yfir veðurspá og ástandi vega í Víkurskarði og Dalsmynni. 

„Á síðasta ári fóru sjúkrabílar hér á Húsavík í 470 verkefni og í miklum meirihluta þeirra fórum við með sjúklingana á Sjúkrahúsið á Akureyri. Ég hef ekki nákvæma tölu en það lætur nærri að sjúkrabíll fari frá okkur í gegnum Vaðlaheiðargöng að jafnaði einu sinni á dag, allt árið,” segir Eysteinn í viðtalinu og bætti við að Vaðlaheiðargöng hafi tryggt aukið flæði sérhæfðs starfsfólks á milli stofnana innan Heilbrigðisstofnunar Norðurlands og stuðlað þannig að betri þjónustu, bæði austan og vestan ganganna.