Verktakar

Sameiginlegt tilboð ÍAV hf og Marti Contractors Lts frá Sviss í gerð Vaðlaheiðarganga var lægst en tilboð voru opnuð hjá Vegagerðinni 11. október 2011. Tilboðið hljóðaði upp á ríflega 8,8 milljarða króna eða um 95 prósent af kostnaðaráætlun.

Önnur tilboð voru á bilinu 9,5 - 10,8 milljarðar frá íslenska samstarfshópnum Norðurverki, Ístaki hf og Metrostav a.s. og Suðurverki hf.

Áætlaður verktakakostnaður var 9.323.350.000.

Þessi tilboð bárust í verkið:

  • IAV/Marti (Ísland - Joint Venture)                       8.853.134.474     95,0%
  • Norðurverk (Ísland - samstarfshópur)                 9.488.706.534    101,8%
  • Ístak hf (Ísland)                                                      9.901.752.795      106,2%
  • Metrostav-Suðurverk (Ísland - Joint Venture)  10.849.427.276    116,4%

Þessir stóðu að Norðurverki:  

  • Árni Helgason ehf.
  • SS Byggir ehf.
  • Skútaberg ehf.
  • GV Gröfur ehf.
  • Rafeyri ehf.
  • Norðurbik ehf.

Tveir aðrir verktakar höfðu lýst áhuga á að bjóða í verkið og reyndust til þess hæfir, annars vegar Per Aarsleff a/s og JK Petersen Contractors P/F, Joint Venture frá Danmörku og Færeyjum og hins vegar Leonhard Nilsen & Sønner AS frá Noregi. Ekki bárust tilboð frá þessum aðilum.