Mikið vatn eftir rjúkandi gang síðu viku

hiti í göngum (mynd/Osig)
hiti í göngum (mynd/Osig)
Framvinda síðustu viku var nokkuð góð og stefndi í met viku en þá var farið í vatnsæð ca. 250-300 l/s af um 46°C heitu vatni. Göngin lengdust samt sem áður um 87,5 m síðustu viku, heildarlengd 1.863,5 m sem er 26% af heildarlengd.

Framvinda síðustu viku var nokkuð góð og stefndi í met viku en þá var farið í vatnsæð ca. 250-300 l/s af um 46°C heitu vatni.
Göngin lengdust samt sem áður um 87,5 m síðustu viku, heildarlengd 1.863,5 m sem er 26% af heildarlengd. Vegna mikils hita brugðu starfsmenn á það ráð að sprauta köldu vatni frá borörmum yfir starfsmenn sem unnu úr körfu. Ekki er auðvelt að taka myndir vegna gufu en meðfylgjandi myndir tók Oddur Sigurðsson, eftirlitsmaður.

gufa í göngum (mynd/ Osig) Vatn í göngum (mynd /Osig)