Breytingar á nafni félagsins, tilgangi og hlutverki.

Þann 1.júlí 2026 voru tímamót í sögu Vaðlaheiðargang hf. Þar sem breytingar voru gerðar á  nafni félagsins, tilgangi og hlutverki félagsins. Nýtt nafn á félaginu er Göng og brú ohf.  
Í fréttatilkynningu frá fjármála og efnahagsráðanetinu þann 1.7.2026 kemur þetta fram:  Í samræmi við lög um innviðafélag , sem samþykkt voru á Alþingi 18. júní sl., hefur fjármála- og efnahagsráðherra komið á fót hlutafélagi um fjármögnun og uppbyggingu mikilvægra samgöngumannvirkja.
Félagið hefur hlotið nafnið Göng og brú ohf. Markmið þess er að flýta fyrir þjóðhagslega mikilvægum samgönguframkvæmdum, skapa farveg fyrir stöðuga fjármögnun slíkra verkefna og tryggja hagkvæma, faglega og skilvirka verkefnastjórn við undirbúning og framkvæmd þeirra.
Göng og brú fylgir fyrirmyndum á hinum Norðurlöndunum þar sem sambærileg félög hafa lagt grunn að langtímahugsun og samfellu í jarðgangagerð og öðrum stórum framkvæmdum. Mikilvægi félagsins sést ekki síst í því að 9 ár eru liðin frá því síðustu framkvæmdir hófust við gangagerð á Íslandi.
Til þess að stuðla að markmiðunum mun félagið starfa á sjálfbærum fjárhagslegum grunni. Fjármögnun félagsins og verkefna þess mun byggjast að mestu á notendagjöldum og lánsfjármögnun á almennum markaði en einnig er heimilt að sækja fjármagn frá aðilum eins og lífeyrissjóðum eða öðrum sérhæfðum fjárfestum.
Félagið er stofnað á grunni Vaðlaheiðarganga hf. og mun það fara með eignarhald og rekstur gangnanna frá og með deginum í dag. Með þessari ráðstöfun hefur félagið þann rekstrargrunn sem þarf til þess að ýta frekari verkefnum úr vör.
Alþingi mun hafa stefnumótandi aðkomu í gegnum samgönguáætlun þar sem verkefni sem félaginu stendur til boða að taka að sér verða tilgreind sérstaklega. Auk Vaðlaheiðarganga er í lögunum heimilt að fela félaginu eignarhald á brú yfir Hornafjarðarfljót og Ölfusárbrú. Þá er ráðgert að félagið muni sjá um framkvæmdir á Fljótagöngum.
Með þessu móti verður unnt að setja aukinn kraft í stórframkvæmdir í samgöngum og skapa sjálfstæða, stöðuga og faglega fjármögnun þeirra til framtíðar.