Opnun tilboða í Vaðlaheiðargöng 11.10.2011

11. október 2011 voru opnuð tilboð í Vaðlaheiðargöng og var sameiginlegt tilboð ÍAV hf. og Marti Contractors Lts. frá Sviss í gerð Vaðlaheiðarganga var lægst en tilboð voru opnuð hjá Vegagerðinni í dag. Tilboð þeirra hljóðaði upp á ríflega 8,8 milljarða króna eða um 95 prósent af kostnaðaráætlun. Önnur tilboð voru á bilinu 9,5 milljarðar upp í 10,8 frá íslenska samstarfshópnum Norðurverki, frá Ístaki hf. og frá sameiginlegu boði Metrostav a.s. og Suðurverki hf., að því er fram kemur á vef Vegagerðarinnar. Áætlaður verktakakostnaður 9.323.350.000.

11. október 2011 voru opnuð tilboð í Vaðlaheiðargöng og var sameiginlegt tilboð ÍAV hf. og Marti Contractors Lts. frá Sviss í gerð Vaðlaheiðarganga var lægst en tilboð voru opnuð hjá Vegagerðinni í dag. Tilboð þeirra hljóðaði upp á ríflega 8,8 milljarða króna eða um 95 prósent af kostnaðaráætlun.

Önnur tilboð voru á bilinu 9,5 milljarðar upp í 10,8 frá íslenska samstarfshópnum Norðurverki, frá Ístaki hf. og frá sameiginlegu boði Metrostav a.s. og Suðurverki hf., að því er fram kemur á vef Vegagerðarinnar.

Áætlaður verktakakostnaður 9.323.350.000.

IAV/Marti (Ísland - Joint Venture)  8.853.134.474,- 95,0 %
Norðurverk (Ísland - samstarfshópur)  9.488.706.534,- 101,8 %
Ístak hf. (Ísland) 9.901.752.795,- 106,2 %
Metrostav-Suðurverk (Ísland - Joint Venture) 10.849.427.276,- 116,4 %

 

Þessir standa að Norðurverki allir íslenskir:  Árni Helgason ehf.,SS Byggir ehf.,Skútaberg ehf.,GV Gröfur ehf.,Rafeyri ehf. og Norðurbik ehf.

 Tveir aðrir verktakar höfðu lýst áhuga á að bjóða í verkið og reyndust til þess hæfir en það voru Per Aarsleff a/s og JK Petersen Contractors P/F, Joint Venture frá Danmörku og Færeyjum annarsvegar og hinsvegar Leonhard Nilsen & Sønner AS frá Noregi. Ekki bárust tilboð frá þessum aðilum.

heimild: Vegagerðin